Feng Shui fyrir heimilið

Viltu uppgötva hvernig hægt er að betrumbæta orkuflæðið í íbúðinni þinni fyrir betri vellíðan?

Hvaða staðir í íbúðinni þinni eru þínir bestu staðir fyrir auðlegð, betri samskipti, heilsu o.fl.?

Hér skoðum við og vinnum með m.a. aðkomu að íbúð – andyrið – svefnherbergið – stofan – eldhúsið – veggskreytingar – möguleg áhrif aðliggjandi herbergja – orkuflæðið – o.fl.

Farið er yfir alla þá grunnþætti Feng Shui sem tengjast sérstaklega aðstæðum í íbúðinni þinni, m.a. hvaða áhrif hafa uppröðun húsgagna, litir, myndir og ýmsir hlutir á líðan þína heima og hvernig hægt er að breyta því fyrir betra jafnvægi og vellíðan?

Fyrir þessa þjónustu þarft þú að senda eftirfarandi:
› Grunnteikningu íbúðar
› Ljósmyndir af hverju herbergi
› Fæðingardaga, fæðingarár og kyn allra íbúa íbúðarinnar og í hvaða herbergi þeir sofa.
› Í hvaða átt snúa aðaldyr íbúðarinnar

Við merkjum inn svokölluð auðlegðarsvæði íbúðarinnar fyrir árið í ár og einnig hvar þau áhrif eru til viðbótar í þeim mánuði sem þjónustan fer fram.

Innifalið í þessari þjónustu er líka :
› Bestu áttirnar og nýting þeirra
› Feng Shui í svefnherberginu

Afgreiðslutími á þessari þjónustu er um 10 dagar (eftir að greiðsla er afgreidd). 

Einnig er hægt að panta viðbótarþjónustu, eins og Dowsing, Feng Shui fyrir garðinn o.fl. í pöntunarforminu hér til hliðar. Varðandi einbýlishús, garð eða annað þarf nánari upplýsingar til aðlaga tilboð útfrá því.

Athugið. Öll Feng Shui vinnan er trúnaðarvinna.